Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseti hlýtur að svara þessari fyrirspurn þannig að hann sé staðráðinn í að halda starfsáætlun Alþingis og vísar þar til víðtæks samkomulags sem varð milli forseta og formanna þingflokkanna og ráðherra um að stefna að þingfrestun 10. mars og það hlýtur að verða gert.