Meðferð, vinnsla og dreifing sjávarafurða

Mánudaginn 12. október 1998, kl. 16:10:55 (299)

1998-10-12 16:10:55# 123. lþ. 7.8 fundur 77. mál: #A meðferð, vinnsla og dreifing sjávarafurða# (gildistaka EES-reglna) frv. 121/1998, SvanJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur, 123. lþ.

[16:10]

Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):

Herra forseti. Í skrá yfir þingmál ríkisstjórnarinnar sem dreift var með stefnuræðu forsrh. kemur fram að sjútvrh. hyggst flytja eitt mál á þessu þingi. Það er frv. til laga um breytingu á lögum um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða. Er þetta litla frv. sem hér var mælt fyrir það frv.? Felst í þessu þingmáli stefna og fyrirheit ríkisstjórnarinnar í málefnum sjávarútvegsins á þessum þingvetri?

Ég vek athygli á því, herra forseti, að efni frv. er einungis að seinka gildistöku.