Meðferð, vinnsla og dreifing sjávarafurða

Mánudaginn 12. október 1998, kl. 16:11:39 (300)

1998-10-12 16:11:39# 123. lþ. 7.8 fundur 77. mál: #A meðferð, vinnsla og dreifing sjávarafurða# (gildistaka EES-reglna) frv. 121/1998, sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur, 123. lþ.

[16:11]

Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):

Herra forseti. Þetta frv. er það sama og getið er um á lista yfir stjfrv. sem fylgdi stefnuræðu hæstv. forsrh. Hins vegar má það vera ljóst að stefna ríkisstjórnarinnar í málefnum sjávarútvegsins er miklu víðfeðmari en svo að hún rúmist í þessu litla frv. og hélt ég satt best að segja að ekki hefði þurft að taka það sérstaklega fram hér á hinu háa Alþingi. En að gefnu því tilefni að fyrirspurnin er borin fram þá er rétt að því sé svarað.