Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Í frv. um miðlægan gagnagrunn er ekki gert ráð fyrir að upplýsingar komi frá Tryggingastofnun eða lyfjaverslunum. Þar af leiðandi höfum við ekki beðið sérstaklega um umsagnir frá þessum aðilum. Þar fyrir utan hefur þetta frv. verið öllum opið á netinu. Við höfum fengið margar góðar athugasemdir, bæði frá almenningi og fagmönnum á sviðinu, þrátt fyrir að hafa ekki sent þeim frv. sérstaklega. Þar sem við ætlum ekki að neinar upplýsingar úr Tryggingastofnun eða lyfjaverslunum fari í þennan grunn töldum við ekki ástæðu til að leita þaðan umsagna.