Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. frsm. fyrir skýr og skilmerkileg svör við fyrirspurnum mínum og ég fagna því að stefnt er að heildarendurskoðun á þingskapalögunum. Hv. frsm. nefndi að a.m.k. yrði að taka út það sem snýr að því að stofna til sérnefndar varðandi skýrslur Ríkisendurskoðunar og fleira og ég fagna því. Hann nefndi einnig önnur atriði og ég vil spyrja hvað það er sem hv. frsm. hefur þar í huga. Ég hef mikinn áhuga á þessum rannsóknarnefndum. Ég heyri að sumir þingmenn eru því andsnúnir, en ég vil nefna það, herra forseti, að það tíðkast í flestum þjóðþingum að slíkar rannsóknarnefndir séu til staðar, og það er áhugamál mjög margra að svigrúm skapist einnig á þjóðþingi Íslendinga að slík rannsóknarnefnd verði sett á laggirnar.
Ég vil því spyrja sérstaklega um hvað það er sem hv. frsm. hefur í huga þegar hann talar um önnur atriði ef ekki næst samstaða um heildarendurskoðun en sérnefnd um skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Hv. frsm. nefndi að hann teldi eðlilegt og sjálfsagt að ráðherrar hefðu beinan aðgang að Ríkisendurskoðun. Ég er ekki sammála hv. frsm. um það og sé reyndar ekki þegar ég les yfir lögin um Ríkisendurskoðun að ráðherrar geti haft beinan aðgang að Ríkisendurskoðun. Mér finnst miklu nær að huga að því að þingflokkar eða þingmenn hafi beinan aðgang að Ríkisendurskoðun, sem heyrir undir Alþingi, fremur en að ráðherrar hafi þar einhverja sérstöðu og beinan aðgang að Ríkisendurskoðun sem ég fæ ekki séð af lögunum að standist.