Guðmundur Hallvarðsson (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka fyrir þá skýrslu sem frsm. hafði hér frammi áðan. En það sem vekur athygli enn einu sinni þegar skýrslan er lögð fram eru þær miklu tafir sem verða hjá stjórnvöldum á afgreiðslu mála og nú er talað um 57 mál.
Frsm. hafði orð á því að nokkurt jafnvægi væri í fjölda mála á milli ára og vekur það þá athygli hve þessi málaflokkur, þ.e. tafir, er stór hluti af heildarfjölda mála sem umboðsmaður Alþingis er að fjalla um. Ég vildi því spyrja hv. frsm., sem tók á móti þessu máli og málflutningi umboðsmanns, hvað það væri sem gæti orðið á kostnað öryggis ef breytt væri ákvæðum laga um það sem segir að skil hjá stjórnvöldum skuli vera skilvirkari en sagt er. Nú segir, ef ég man rétt, að það skuli vera svo fljótt sem verða má. Væri þessum ákvæðum breytt og sett skilyrði, gæti það þá orðið á kostnað öryggis eins og mátti skilja á málflutningi frsm. þegar umboðsmaður Alþingis kom í heimsókn til þessarar hv. nefndar?