Skýrsla umboðsmanns Alþingis 1996

Fimmtudaginn 15. október 1998, kl. 12:25:20 (424)

1998-10-15 12:25:20# 123. lþ. 11.5 fundur 60#B skýrsla umboðsmanns Alþingis 1996# (munnl. skýrsla), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur, 123. lþ.

[12:25]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti vill upplýsa vegna orða hv. þm. um að það væri vont að ræða þessa skýrslu í skugga þess máls sem hér yrði á eftir, eins og þingmaðurinn orðaði það, að skýrslur umboðsmanns og Ríkisendurskoðunar eru ræddar í dag samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Það var því löngu ákveðið.