Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 15. október 1998, kl. 16:32:23 (460)

1998-10-15 16:32:23# 123. lþ. 11.6 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur, 123. lþ.

[16:32]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að leiðrétta hv. þm. því hann sagði áðan að það frv. sem hér lægi fyrir bryti í bága við stefnumótun í upplýsingamálum innan heilbrigðiskerfisins. Það gerir það ekki og ég var að leiðrétta það.