Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 15. október 1998, kl. 17:21:13 (470)

1998-10-15 17:21:13# 123. lþ. 11.6 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv., ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur, 123. lþ.

[17:21]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Herra forseti. Ég er einfaldlega ósammála hv. þm. Ég tel að það sé útilokað og að það væri verra, miðað við þær forsendur sem ég hef, að búa til eitthvað sem væri upplýst samþykki. Ég tel að við værum að draga fólk á asnaeyrum. Þessi skoðun mín byggir á þeim rökum sem ég reyndi að færa fyrir máli mínu. Auðvitað getur hv. þm. komið og spurt um þetta í þriðja skiptið. Þetta er svar mitt. Það vill svo til að við sitjum bæði í heilbr.- og trn. þar sem hún getur auðvitað komið og reynt að vega mig með þeim rökum sem ég dreg ekki í efa að hún búi yfir í vopnabúri sínu.