Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir þessi svör. Ég held að það sé rétt hjá hv. þm. að heilbr.- og trn. þurfi aðeins að skoða þetta mál því að það eru greinilega skiptar skoðanir um það hjá sérfræðingum hvort unnt sé að finna sjúkling í þessum gagnagrunni til þess að bæta við hann upplýsingum. Ég hef a.m.k. heyrt það á sérfræðingum sem ég hef rætt við um þetta mál að þeir hafa ákveðnar efasemdir um að þetta sé hægt. Auðvitað veit ég og mér fyndist eðlilegt að stöðugt þyrfti að bæta við upplýsingum í grunninn. En það eru ákveðnar efasemdir meðal sérfræðinga um tölvufærslur af þessu tagi, efasemdir um að þegar um ópersónugreinanlegar upplýsingar er að ræða sé hægt að finna sjúklinginn til þess að bæta við hann upplýsingum. Það hef ég fengið upplýst af þeim sérfræðingum sem ég hef leitað til. En við finnum vonandi svör við því í nefndinni og ef þetta er rétt hjá hv. þm. þá er það gott og blessað. Ég vona að það sé rétt. En við þurfum greinilega að skoða þetta mál betur í nefndinni, og ekki bara þetta heldur mjög margt annað.