Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 15. október 1998, kl. 18:35:47 (486)

1998-10-15 18:35:47# 123. lþ. 11.6 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv., EOK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur, 123. lþ.

[18:35]

Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Á málþingi háskólarektors nú um helgina kom skýrt og greinilega fram hjá fleiri en einum og fleiri en tveimur okkar fremstu vísindamanna í stærðfræði að hægt væri að gera þetta, ekki eingöngu með því að brjótast inn heldur mætti gera þetta á löglegan hátt. Eins kom fram það sjónarmið að læknisfræðileg þörf gæti kallað á að opna gagnagrunninn. Ég er ekki frá því að sá tími gæti komið að vegna læknisfræðilegrar nauðsynjar verði að opna hann. Þess vegna lagði ég fram þessa spurningu.