Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Varðandi gagnsemi grunnsins verður ekki gagn að þessum grunni nema víðtækt samkomulag náist um hann. Þess vegna er svo mikilvægt að þær heilbrigðisstofnanir, sem er trúað fyrir varðveislu þessara mikilvægu gagna, séu þær sem ráða því hvaða upplýsingar fara úr úr stofnun. Það er grundvallaratriði.
Hvað það varðar að Háskóli Íslands ætti að fá leyfi til að reka slíkan gagnagrunn eru menn um leið að viðurkenna að rétt sé að setja upp slíkan gagnagrunn. Þá eru menn aðeins komnir nær efninu því að þá eru menn búnir að viðurkenna að rétt sé að setja upp slíkan gagnagrunn. Þá kemur hitt álitaefnið. Það er hvort íslenska ríkið sé tilbúið að leggja í það þær fjárhæðir sem til þarf til að þetta geti orðið að veruleika. Þá erum við að tala um 10--20 milljarða. Þá verðum við að taka það fjármagn úr einhverjum öðrum liðum sem við erum með, t.d. á fjárlögum, og ég er ekki tilbúin að svara því hvaðan við tökum það fjármagn.