Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég er alveg viss um það að þegar hv. þm. og formaður heilbr.- og trn. fer að kanna frv. betur vill hann eiga þennan möguleika að hægt sé að geyma dropa. Ef t.d. finnst í blóði einhver stökkbreyting, eitthvað alveg sérstakt sem getur komið læknavísindum til góða, þá getur það verið einnar messu virði að geyma þann dropa, eins og margoft hefur komið fram að undanförnu.