Meðferð dómsskjala í barnaverndarmáli

Mánudaginn 02. nóvember 1998, kl. 15:38:30 (735)

1998-11-02 15:38:30# 123. lþ. 17.2 fundur 81#B meðferð dómsskjala í barnaverndarmáli# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur, 123. lþ.

[15:38]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Eins og menn vita hef ég ekki yfir dómsmrn. að segja eða hvernig dómar eru birtir þar. Ég mun setja mig nú þegar í samband við forstöðumann Barnaverndarstofu og fá skýrslu um málið. Þá er hugsanlegt að taka málið upp við hæstv. dómsmrh. og fara fram á einhverjar úrbætur í þessu efni.