Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Fimmtudaginn 05. nóvember 1998, kl. 10:34:06 (908)

1998-11-05 10:34:06# 123. lþ. 21.3 fundur 92#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), utanrrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur, 123. lþ.

[10:34]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Á tímum örra breytinga og aukinnar alþjóðavæðingar sem nær til allra meginþátta í lífi þjóðarinnar, starfa hennar og menningar, er öflug utanríkisþjónusta nauðsynleg. Íslendingar eru háðari umheiminum um afkomu en gengur og gerist meðal þjóðanna. Mörkin milli innanríkis- og utanríkismála verða sífellt óljósari. Tengsl íslensku utanríkisþjónustunnar við atvinnuvegina í landinu hafa markvisst verið efld á undanförnum missirum. Alhliða tengsl hennar við íslenskt atvinnulíf er mikilvægur liður í að geta veitt þennan stuðning.

Nú er talið að um eitt hundrað milljónir manna hafi aðgang að alnetinu. Því er spáð að árið 2005 verði notendur orðnir um þúsund milljónir í heiminum. Þetta hefur skapað okkur ný tækifæri, enda eru Íslendingar meðal forustuþjóða í þessari þróun og hugvits- og athafnamenn okkar hafa fært umtalsverðar tekjur í þjóðarbúið. Aftur á móti ber að hafa hugfast að þrír fjórðu hlutar mannkyns eiga ekki síma, hvað þá tölvu og nettengingu. Allt of stór hluti íbúa heimsþorpsins svokallaða býr við sára fátækt og hefur engin tök á að njóta þó ekki væri nema brotabrots af þeim lífsgæðum sem við búum við og teljum sjálfsögð. Iðnríkjunum ber skylda til að aðstoða þróunarlöndin og hefur ríkisstjórnin ákveðið að efla íslenska þróunaraðstoð.

Mikilvægi auðlinda- og umhverfismála eykst stöðugt í samskiptum ríkja. Stofnun sérstakrar skrifstofu í utanríkisráðuneytinu sem fer með þau mál endurspeglar þetta og er unnið að því hörðum höndum að afla íslenskum sjónarmiðum fylgis á alþjóðavettvangi. Meginmál ræðu minnar á 53. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna var helgað nýtingu sjávarauðlinda í tilefni af hinu alþjóðlega ári hafsins.

Í gær tók Ísland við varaformennsku í Evrópuráðinu og í maí á næsta ári munum við taka þar við formennsku í fyrsta sinn.

Næsta ár verður Ísland í fyrirsvari fyrir norrænu ráðherranefndinni og mun m.a. bera ábyrgð á samræmingu norrænnar ríkisstjórnasamvinnu og eiga nauðsynlegt frumkvæði að málum. Samstarf Norðurlandanna hefur sennilega aldrei verið jafnöflugt og nú, þrátt fyrir aðild þriggja þeirra að Evrópusambandinu. Jafnframt er athyglisvert hve virkan þátt öll Norðurlöndin taka í alþjóðlegu og evrópsku samstarfi.

Eftir hálft ár munum við minnast þess í Washington að fimmtíu ár eru liðin frá stofnun Atlantshafsbandalagsins. Saga bandalagsins og velgengni er ólygnust um réttmæti þeirrar framsýnu öryggisstefnu sem forystumenn núverandi stjórnarflokka og Alþýðuflokksins mörkuðu fyrir hálfri öld er Ísland gerðist stofnaðili að bandalaginu.

Norrænt samstarf verður í brennidepli á Íslandi árið 1999 þegar Ísland gegnir formennsku í norrænu ráðherranefndinni. Samstarf Norðurlandaþjóðanna sem á sér langa sögu er afar umfangsmikið og hefur nýst okkur á nánast öllum sviðum þjóðlífsins, milli ríkisstjórna, þingmanna, embættismanna, stofnana og félagasamtaka. Hin hefðbundna norræna samvinna fer m.a. fram á sviði menningar-, mennta- og rannsóknamála; efnahags,- félags-, löggjafar-, atvinnu- og umhverfismála; auk landbúnaðar-, samgöngu- og fiskveiðimála. Óumdeilt er að norrænt samstarf er einn af hornsteinum íslenskrar utanríkisstefnu.

Norræn samvinna hefur aukist með nýjum straumum á alþjóðavettvangi. Ýmsir töldu að norrænt samstarf glataði merkingu sinni þegar þrjú norrænu ríkjanna gerðust aðilar að ESB. Raunin hefur orðið sú að samráð Norðurlandanna er nú mikilvægara en nokkru sinni fyrr og hefur aukist á mörgum sviðum. Næsta víst er að frekari stækkun ESB leiðir til stóraukins svæðasamstarfs. Þar standa Norðurlöndin vel að vígi með sitt rótgróna samstarf og samnorrænu stofnanir.

Nauðsynlegt er fyrir Íslendinga að staldra við og meta stöðu norræns samstarfs þegar við tökum við formennsku þess um næstu áramót. Á formennskuárinu gefst okkur tækifæri til að leggja áherslu á málefni sem við teljum sérstaklega brýn og koma Norðurlöndunum í heild til góða. Umhverfismálefni verða efst á baugi, einkum sjálfbær nýting lifandi auðlinda hafsins á norðurslóðum, ekki síst í tengslum við ár hafsins og það starf sem unnið er á vettvangi Sameinuðu þjóðanna um þau málefni. Áhersla verður lögð á samstarf til að koma í veg fyrir mengun og tryggja skynsamlega nýtingu auðlinda hafsins, þar með talda nýtingu sjávarspendýra.

Við munum leitast við að marka samnorræna stefnu varðandi norðlægu víddina, en þar er um að ræða tillögu sem Finnar hafa lagt fram innan Evrópusambandsins og miðar að því að ESB móti áætlun fyrir norðlægari hluta Evrópu líkt og gert hefur verið varðandi Miðjarðarhafssvæðið. Aukin áhersla ESB á norðlægu víddina getur haft mjög mikla þýðingu fyrir umhverfis-, atvinnu- og efnahagsmál á norðurslóðum og ekki síst evrópskt samstarf við Rússland. Á formennskuárinu er enn fremur stefnt að því að móta norrænt samráð varðandi evrómyntina og fylgjast vel með reynslu Finna hvað það varðar. Við teljum einnig mikilvægt að tengja norrænt samstarf nýrri öld og landafundaárinu. Með því gefst gott tækifæri fyrir Ísland og önnur lönd sem teljast til vesturhluta Norðurlandanna til að verða í norrænu sviðsljósi.

Þessar áherslur í norrænu samstarfi sýna glöggt vilja íslenskra stjórnvalda til að tengja norrænt samstarf alþjóðasamstarfi í víðara samhengi. Þrískipting norræna samstarfsins í hefðbundin norræn málefni, grannsvæðamálefni og evrópsk málefni hefur gefist vel.

Samstarf norrænu utanríkisráðherranna um málefni ESB, Sameinuðu þjóðanna, norðurskautsmál, þróunarmál, varnar- og öryggismál og mannréttindamálefni er afar mikilvægt fyrir Ísland og veitir okkur innsýn í ýmis málefni sem við eigum ekki kost á að sinna ein og sér.

Á vegum norrænu utanríkisráðherranna var tekin saman skýrsla í ágúst sl. um norrænt samstarf. Niðurstaða hennar er sú að norræn samvinna hafi aldrei verið eins náin og mikilvæg sem nú.

Starfsemi Eystrasaltsráðsins, Barentsráðsins og norðurskautsráðsins stuðlar að jákvæðri þróun í samskiptum aðildarríkja á hinum ýmsu sviðum. Nefna má umhverfismál, sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda, efnahagssamvinnu og mannréttindamál. Utanríkisráðuneytið hefur í samstarfi við Flugmálastjórn boðið tveimur sérfræðingum frá hverju Eystrasaltsríkjanna til þjálfunar hjá Flugmálastjórn.

Á utanríkisráðherrafundi Norðurskautsráðsins í september sl. var mörkuð stefna fyrir starfsemi ráðsins næstu tvö árin og samþykkt aðgerðaáætlun um verndun hafsins á norðurslóðum gegn mengun frá landstöðvum. Um er að ræða yfirgripsmikla áætlun sem krefst náins samstarfs aðildarríkja í framkvæmd. Til að stuðla að framkvæmd þeirrar áætlunar og samhæfa aðgerðir bauðst ríkisstjórnin til að vista skrifstofu hér á landi og kosta hana til hálfs við önnur aðildarríki norðurskautsráðsins og verður skrifstofan opnuð í byrjun næsta árs.

Evrópuráðinu í Strassborg er ætlað að efla samvinnu og samkennd meðal ríkja álfunnar, standa vörð um mannréttindi, styrkja lýðræðislega stjórnarhætti og auka stöðugleika. Í þágu þessara markmiða sinnir Evrópuráðið málaflokkum eins og sveitarstjórnarmálum, félagsmálum, umhverfismálum, menningu, menntun og samvinnu á sviði löggjafar. Ljóst er að með fyrirbyggjandi aðgerðum gegnir Evrópuráðið mikilvægu hlutverki í hinu nýja öryggisfyrirkomulagi Evrópu sem enn er í mótun. Margþætt samstarf aðildarríkjanna, sveitarstjórnarmanna og þingmanna sem eiga sæti á þingmannasamkomu ráðsins, er mikilvægt fyrir tengslin á milli þjóða Evrópu.

Mikilvægi Evrópuráðsins hefur vaxið eftir lok kalda stríðsins. Ráðið gegnir nú stóru hlutverki í aðlögun ríkja Mið- og Austur-Evrópu að lýðræðislegum stjórnarháttum. Sextán ríki sem áður bjuggu við kommúnisma hafa fengið aðild að ráðinu en aðildarríkin eru 40 talsins. Flest hinna nýju aðildarríkja bjuggu við ólýðræðislega stjórnarhætti og meginreglur nútímaréttarríkja voru þeim framandi. Evrópuráðið hefur aðstoðað þau við að breyta þessu. Aðild að ráðinu hefur jafnframt skapað þessum ríkjum skilyrði fyrir þátttöku í evrópsku samstarfi og styrkt þau í öðru alþjóðlegu samstarfi.

Á utanríkisráðherrafundi Evrópuráðsins, sem haldinn var í gær, lagði ég sérstaka áherslu á að öll aðildarríki ráðsins standi við þær skuldbindingar sem aðild hefur í för með sér. Í þeim efnum verður að ríkja jafnræði milli aðildarríkjanna. Stækkun Evrópuráðsins má ekki leiða til lakari mælikvarða á sviðum sem það fjallar um. Virðing fyrir mannréttindum er grundvallarforsenda fyrir öryggi og jafnvægi í Evrópu.

Eftirlit með því hvort aðildarríkin uppfylli skyldur sínar er mikilvægur þáttur í starfi Evrópuráðsins. Nýr mannréttindadómstóll Evrópu tók til starfa sl. þriðjudag og leysir hann af hólmi mannréttindanefndina og fyrri dómstól. Ráðherranefndin og þingmannasamkoma Evrópuráðsins gegna einnig veigamiklu hlutverki í eftirlitskerfi ráðsins. Fyrirhugað er að stofna embætti sérstaks umboðsmanns mannréttinda við Evrópuráðið. Ísland hefur heils hugar stutt þessi framfaraskref í starfsemi þess.

Á utanríkisráðherrafundi Evrópuráðsins í gær tók Ísland við varaformennsku þess. Ísland tekur síðan við formennsku í Evrópuráðinu í fyrsta sinn í maímánuði á næsta ári, á hálfrar aldar afmæli ráðsins. Undirbúningur fyrir formennskuna er þegar hafinn og fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu hefur verið efld.

Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu er eini samstarfsvettvangurinn þar sem öll ríki Evrópu eru þátttakendur ásamt ríkjum Norður-Ameríku, samtals 54 ríki.

Á síðustu árum hefur ÖSE tekið að sér æ viðameira hlutverk í því nýja öryggiskerfi sem er í mótun í Evrópu. Þar má nefna margháttaðar aðgerðir til að koma í veg fyrir átök, starf sérstakra sendimanna og sveita til að finna friðsamlegar lausnir á deilumálum, friðargæslustörf og störf sem miða að vernd mannréttinda og takmörkun vígbúnaðar. Starf ÖSE í nýfrjálsum ríkjum álfunnar, þar á meðal í Eystrasaltsríkjunum og öðrum fyrrverandi hlutum Sovétríkjanna, allt austur í Mið-Asíu, hefur verið þeim ómetanlegur stuðningur.

[10:45]

NATO og ÖSE hafa bundist sífellt sterkari böndum. Það sést best með ákvörðuninni um að senda á vettvang 2.000 manna eftirlitssveit á vegum ÖSE sem fylgjast á með því að samkomulagið um Kosovo sé haldið.

Um nokkurt skeið hefur Ísland verið eina Evrópuríkið án fastanefndar hjá ÖSE í Vínarborg. Ákveðið hefur verið að opna skrifstofu fastanefndar Íslands þar á ný strax eftir áramótin. Ekki er síður mikilvægt að hafa íslenska fastanefnd í Vínarborg en Strassborg en þar höfum við nýlega opnað skrifstofu.

Þótt þátttaka okkar í starfi Sameinuðu þjóðanna hafi verið einn af hornsteinum utanríkisstefnunnar og að við höfum látið til okkar taka á flestum sviðum í starfsemi samtakanna höfum við aldrei tekið sæti í öryggisráðinu. Þátttaka í starfi þess er eitt mikilsverðasta framlag hvers aðildarríkis til veigamestu markmiða samtakanna, varðveislu friðar og öryggis í heiminum. Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að stefnt skuli að framboði til sætis í öryggisráðinu. Ísland er reiðubúið að axla þessa ábyrgð, eins og önnur aðildarríki, og leggja sitt af mörkum til að styrkja hlutverk öryggisráðsins og efla það traust sem er því nauðsynlegt til að geta sett niður deilur og verið samnefnari hins alþjóðlega samfélags þegar nauðsyn ber til að knýja fram friðaraðgerðir.

Norðurlöndin hafa með sér náið samráð um framboð til ráðsins og hafa lagt áherslu á að um norræn framboð sé að ræða. Ég hef rætt við norræna starfsbræður mína um framboð Íslands og fengið einróma stuðning þeirra við þá fyrirætlun. Ljóst er að nokkuð mörg ár munu líða þar til af framboði getur orðið og mun sá tími nýtast vel til undirbúnings og til að styrkja alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og fastanefndina í New York.

Á undanförnum árum hafa aðildarríki unnið að því að ná samkomulagi um að endurbæta starfsemi öryggisráðsins og fjölga aðildarríkjum þess. Fari svo að aðildarríkjum verði fjölgað gæti framboð Íslands orðið að veruleika fyrr en ella.

Hinn 10. desember nk. mun allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna minnast þess sérstaklega að fimmtíu ár eru liðin frá því að mannréttindayfirlýsingin, aðalsmerki mannréttindabaráttu í heiminum, var samþykkt. Ekki er hægt að undanskilja mannréttindi alþjóðastjórnmálum. Þau eru algild og það er á ábyrgð alþjóðasamfélagsins alls að tryggja virðingu fyrir þeim. Fyrir þessu höfuðatriði er vaxandi skilningur meðal þjóða.

Við Íslendingar viðurkennum ekki að gengið sé á mannréttindi í nafni trúarbragða, menningar eða annarra hefða. Við megum ekki láta okkar eftir liggja í alþjóðlegu mannréttindastarfi.

Íslendingar hafa um nokkurt skeið tekið þátt í friðargæslu og friðaruppbyggingu í Bosníu. Þar hafa að jafnaði starfað þrír íslenskir lögreglumenn í alþjóðlegri lögreglusveit við eftirlit og þjálfun innlendra lögreglusveita. Ásamt lækna- og hjúkrunarsveitinni, sem starfað hefur í alþjóðlega herliðinu undir stjórn NATO í Bosníu, hafa íslensku lögreglumennirnir sannað að Ísland hefur á að skipa fagfólki sem við getum verið stolt af í alþjóðlegu friðarsamstarfi.

Ísland hefur einnig leitast við að leggja sitt af mörkum til neyðaraðstoðar og til að leysa vanda flóttamanna en ljóst er að sá vandi er mjög mikill og að allar þjóðir verða að leggja sitt af mörkum í þeim efnum.

Hryðjuverkasprengingar á síðustu mánuðum, þar sem fjöldi saklausra borgara lét lífið eða limlestist, sýna þörfina á alþjóðlegri samvinnu gegn glæpastarfsemi hryðjuverkamanna. Við upphaf allsherjarþingsins í haust hafði ég tækifæri til að undirrita fyrir Íslands hönd alþjóðlegan samning sem beint er gegn hryðjuverkasprengingum.

Nauðsyn er einnig á auknu alþjóðlegu samstarfi til að berjast gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi og eiturlyfjasölu. Mikilvægt er að fylgja eftir niðurstöðum aukaallsherjarþingsins sem haldið var í sumar um fíkniefnavandann.

Auðlinda- og umhverfismál skipa æ mikilvægari sess í alþjóðasamstarfi, einkanlega á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Nauðsynlegt er að efla markvissa þátttöku Íslands í þessu samstarfi.

Umfjöllun um sjávarútveg á vettvangi Sameinuðu þjóðanna tengist í síauknum mæli umræðu um umhverfismál. Þessi þróun þarf ekki að vera neikvæð. Fyrir þjóð, sem byggir afkomu sína á sjávarútvegi í þeim mæli sem við Íslendingar gerum, er þó nauðsynlegt að vera á varðbergi. Umræða um algera friðun fiskstofna eða heilla hafsvæða og tillögur um að fela fjölþjóðlegu yfirvaldi eða stofnunum miðstýringu á nýtingu auðlinda hafsins vegna umhverfissjónarmiða varða lífshagsmuni okkar Íslendinga.

Nú á ári hafsins gefst einstakt tækifæri til að treysta vernd hafsins og sjálfbæra nýtingu auðlinda þess. Ljóst er að ríkisstyrkir og önnur óæskileg opinber fyrirgreiðsla til handa sjávarútvegi hafa stuðlað að ofveiði víðs vegar í heiminum. Sjávarútvegur er í mörgum löndum olnbogabarn þar sem ekki er hugað að fiskveiðistjórnun með ábyrgum hætti. Þetta hefur leitt til þess að fiskstofnar eru víða ofnýttir eða hafa hreinlega hrunið. Afnám ríkisstyrkja yrði áhrifamikið framlag til verndar og sjálfbærrar nýtingar sjávarauðlinda um heim allan.

Ýmis náttúruverndarsamtök og stofnanir, sem beita sér á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, halda því fram að strandríkin hafi brugðist í fiskveiðistjórnun sem er í verkahring þeirra samkvæmt hafréttarsamningnum. Flest þessara samtaka átta sig á afleiðingum ofnýtingar fiskstofna en fara vill vegar hvað varðar orsakirnar. Ég hef lagt ríka áherslu á að grannt verði fylgst með þróun mála á vettvangi Sameinuðu þjóðanna þar sem málefni hafsins fá sífellt meiri umfjöllun.

Hafið verður meginumræðuefni á fundum nefndarinnar um sjálfbæra þróun í apríl á næsta ári. Aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna gefst þar tækifæri til að kynna stefnu sína og sjónarmið.

Í ræðu minni á allsherjarþinginu vakti ég athygli þingheims á athyglisverðri skýrslu sem umhverfisverndarsamtökin World Wildlife Fund gáfu út um nýtingu fiskstofna í heiminum. Í þessari skýrslu segir berum orðum að einungis þrjú ríki í heiminum hafi komið sér upp fiskveiðistjórnarkerfi sem leiði til sjálfbærrar og skynsamlegrar nýtingar fiskstofna, þ.e. Ástralía, Nýja-Sjáland og Ísland. Ýmsum umhverfisverndarsamtökum hættir til að vera með alhliða fullyrðingar um slæmt ástand fiskstofna. Hættan er sú að órökstuddar og rangar fullyrðingar komi því inn hjá fólki að öll neysla sjávarafurða sé neikvæð frá sjónarmiði umhverfisverndar. Þessu þurfum við að vinna gegn.

Þessa dagana stendur yfir í Buenos Aires fjórði aðildarríkjafundur rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Miklu skiptir að við Íslendingar tökum virkan þátt í því mikilvæga alþjóðlega átaki að draga úr gróðurhúsaáhrifum, m.a. með aðild að Kyoto-bókuninni. Aftur á móti hefur margoft verið tekið fram af hálfu ríkisstjórnarinnar að ekki getur orðið um slíka aðild að ræða feli hún í sér að Ísland taki á sig langtum meiri byrði hlutfallslega en önnur iðnríki. Úrslitaatriði í þessu efni er að samþykkt verði skynsamleg útfærsla á ákvæðinu um hlutfallsleg áhrif einstakra verkefna í litlum hagkerfum.

Á síðustu missirum hefur Ísland aukið umsvif sín í þróunarsamvinnu og sér þess merki bæði í tvíhliða þróunarsamstarfi við nokkur Afríkuríki og þátttöku í starfi fjölþjóðlegra þróunarstofnana.

Fyrir ári ákvað ríkisstjórnin að stórauka framlög til tvíhliða þróunarsamvinnu á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands.

Fyrir skemmstu kom ég úr fyrstu heimsókn til samstarfslanda Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í sunnanverðri Afríku og var hún mjög áhugaverð. Ör lýðræðisþróun og batnandi efnahagsástand einkennir nú ástandið víða í Afríku. Til að viðhalda þeirri þróun þarf að auka erlenda fjárfestingu, byggja upp einkafyrirtæki, styrkja menntun og bæta heilsugæslu. Tryggja verður frið því átök geta hæglega breiðst út og ógnað jákvæðum árangri sem þegar hefur náðst.

Stærstu verkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í þessum löndum, Namibíu, Malaví og Mósambík, eru á sviði sjávarútvegs og er mikilvægt að sú aðstoð haldi áfram þó bróðurparturinn af nýjum verkefnum verði á sviði heilsugæslu og menntamála.

Ég er sannfærður um að starfsfólk Þróunarsamvinnustofnunar Íslands vinnur afar gott starf í sunnanverðri Afríku og samstarfsaðilar okkar voru hvarvetna ánægðir með samvinnuna.

Ég hef nú um tveggja ára skeið setið í þróunarnefnd Alþjóðabankans fyrir hönd Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Mikilvægi Alþjóðabankans og systurstofnana hefur sjaldan verið meira en nú þegar óvissa í efnahagsmálum ríkir víða um heim. Bankinn er stærsta þróunarstofnun heims en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn aðstoðar ríki heims við að tryggja stöðugleika í efnahagsmálum og með neyðarlánum.

Á nýafstöðnum fundi nefndarinnar var mikið rætt um efnahagsöngþveitið í Asíu og Rússlandi. Þar lagði ég áherslu á að hlutverk Alþjóðabankans sé fyrst og fremst að veita ráðgjöf og fjárhagslega aðstoð við langtíma efnahagsuppbyggingu. Skammtímaaðgerðir séu þó nauðsynlegar til að tryggja fæðuöryggi, stuðla að atvinnuskapandi verkefnum, og standa vörð um menntun og heilbrigðisþjónustu hinna fátæku.

Ísland gegndi formennsku innan EFTA fyrri hluta þessa árs. Aldrei hafa fleiri ákvarðanir verið teknar af sameiginlegu EES-nefndinni en á fyrri helmingi þessa árs.

Í júlí samþykkti sameiginlega nefndin að samræmdar reglur skyldu gilda innan EES-svæðisins um meðferð sjávarafurða og eftirlit með framleiðslu þeirra. Auk þess gilda sömu reglur um eftirlit með innfluttum sjávarafurðum og tekur ákvörðunin gildi 1. jan. á næsta ári.

Það veldur því nokkrum áhyggjum að eitt aðildarríkja Evrópusambandsins, Spánn, hefur nú lýst því yfir að það muni standa í vegi fyrir frekari þróun EES-samningsins svo lengi sem kröfum Spánverja um áframhaldandi þróunaraðstoð frá EFTA/EES-ríkjunum verði ekki sinnt. Ljóst er að samningsskuldbinding um þróunarsjóð starfræktan af EFTA var bundin við fimm ára umsaminn starfstíma. EFTA/EES-ríkin hafa ekki ljáð máls á framlenginu hans. Það er ekkert nýtt að í tengslum við fríverslunarsamninga séu settir á stofn þróunarsjóðir til að styðja við bakið á þeim sem teljast eiga erfitt með að nýta sér tækifæri fríverslunar. Þannig nutum við Íslendingar góðs af Iðnþróunarsjóði, sem stofnsettur var í tengslum við aðild okkar að EFTA á sínum tíma. Slíkir sjóðir eiga hins vegar ekki að verða eilífir. Ég tel ekkert því til fyrirstöðu að við athugum hvort við getum eflt samstarf við þau ríki sem hér um ræðir, Spán, Portúgal, Grikkland og Írland, telji þessi ríki að þau beri skarðan hlut frá borði í viðskiptum við okkur.

Hvað varðar Schengen-samstarfið voru viðræður loks hafnar nú nýlega. Ótvíræður vilji er fyrir því, jafnt af hálfu Íslands og Noregs sem Evrópusambandsins, að halda áfram því samstarfi um vegabréfaeftirlit og landamæravörslu sem gefið hefur góða raun frá því samstarfssamningurinn um Schengen var undirritaður. Megináhersluatriði, jafnt Íslands sem Noregs, í þessum viðræðum hefur verið að tryggja fullan aðgang að allri umræðu um Schengen-málefni innan Evrópusambandsins. Útlínur samnings eru nú teknar að skýrast en enn er of snemmt að segja fyrir um lyktir.

Stefnt er að því að fríverslunarviðræðum EFTA-ríkjanna og Kanada ljúki á miðju næsta ári. Þetta eru fyrstu fríverslunarviðræðurnar við ríki handan Atlantsála en áður hafa EFTA-ríkin gert fríverslunarsamninga við þrettán ríki og gefið út samstarfsyfirlýsingar við sjö ríki.

Samningaviðræður EFTA-ríkjanna og Jórdaníu um fríverslun eru einnig hafnar og viðræður standa yfir við Kýpur og Túnis.

Ísland tekur sem fyrr virkan þátt í því margþætta alþjóðlega samstarfi sem á sér stað innan Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD. Má þar helst nefna víðtæka samvinnu á sviði efnahags-, viðskipta- og ríkisfjármála og ekki síður mikilvægt starf á sviði iðnaðar-, umhverfis-, fiski-, landbúnaðar-, heilbrigðis- og menntamála. Margar skýrslur stofnunarinnar hafa reynst mjög gagnlegar við stefnumótun íslenskra stjórnvalda.

Efnahagsþrengingar í helstu viðskiptalöndum Íslands í Asíu hafa haft í för með sér töluverðan samdrátt í útflutningi þangað, einkum til Japans. Aukinn útflutningur á aðra markaði og hátt verð þar hefur komið á móti þannig að efnahagssamdrátturinn í Asíu hefur ekki haft teljandi áhrif á íslenskt efnahagslíf.

Ætla verður að Asíuríkin vinni sig út úr þessum erfiðleikum og að viðskipti okkar Íslendinga aukist þá verulega við þennan heimshluta. Stöðugt stærri hluti innflutnings okkar kemur frá Asíu, eftir því sem vörugæði þar aukast og flutningar verða hagkvæmari. Enduruppbygging efnahagsríkja Suðaustur-Asíu skapar ný tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að ná fótfestu þar. Með þetta í huga ráðgeri ég að fara til nokkurra Asíulanda snemma næsta árs. Er sú ferð fyrst og fremst ætluð til að ryðja íslenskum fyrirtækjum braut með hliðstæðum hætti og gert hefur verið á öðrum mörkuðum.

Starfsemi viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins hefur verið öflug undanfarna mánuði. Útflutningsfyrirtækjum gefst kostur á sérhæfðri aðstoð við markaðssetningu vöru og þjónustu við öll sendiráð Íslands. Sérhæft starfsfólk, bæði íslenskt og erlent, hefur verið ráðið við sex sendiráð og er ætlunin að fjölga því í takt við umsvif viðskiptaþjónustunnar.

[11:00]

Öryggis- og varnarmál Evrópu hafa verið í brenni\-depli að undanförnu. Grimmileg ofbeldisstefna Milosevics Júgóslavíuforseta gagnvart Albönum í Kosovo varð til þess að Atlantshafsbandalagið setti forsetanum skýra afarkosti um að virða kröfur hins alþjóðlega samfélags eða sæta hernaðaraðgerðum bandalagsins ella.

Mikilvægt er að árétta að yfirlýsingar bandalagsins gagnvart stjórnvöldum í Belgrad hafa tekið mið af því að knýja fram friðsamlega lausn í deilum Serba og Albana.

Samkomulag sérlegs erindreka Bandaríkjastjórnar og forseta Júgóslavíu, sem gert var í krafti staðfestu Atlantshafsbandalagsins, lofar góðu um að takast megi að koma í veg fyrir frekari hernaðarátök á svæðinu. Gert er ráð fyrir að ÖSE annist ákveðna þætti eftirlits með framkvæmd samkomulagsins. Eftirlitinu er ætlað að tryggja að ákvæði ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um brottflutning hers og öryggissveita Serba frá Kosovo verði virt að fullu. Bandalagið sjálft annast eftirlit með framkvæmd samkomulagsins úr lofti.

Á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í apríl á næsta ári verður þess minnst að fimmtíu ár verða liðin frá undirritun Norður-Atlantshafssamningsins. Merkum áfanga verður náð í ytri og innri aðlögun bandalagsins. Þrjú ný aðildarríki ganga formlega til liðs við bandalagið, endurskoðun á öryggismálastefnu bandalagsins verður lokið og stigin verða frekari skref í átt til eflingar Evrópusamstarfs á sviði öryggis- og varnarmála.

Fulltrúar Póllands, Tékklands og Ungverjalands taka þátt í leiðtogafundinum sem fullgildir aðilar. Þegar samþykkt var í Madrid að bjóða þessum þremur ríkjum aðild var jafnframt ákveðið að endurskoða stækkunarferlið á næsta leiðtogafundi bandalagsins. Öll aðildarríki þess hafa margítrekað að dyr þess standi opnar ríkjum Evrópu. Íslensk stjórnvöld munu sem fyrr leggja áherslu á að Eystrasaltsríkjunum verði veitt aðild að bandalaginu, komi til þess að einstök ríki verði nafngreind.

Endurskoðun á öryggismálastefnu bandalagsins hófst fyrr á þessu ári og stendur fram að leiðtogafundinum. Íslensk stjórnvöld telja að styrkur bandalagsins felist fyrst og fremst í sameiginlegum varnarskuldbindingum og Atlantshafstengslunum og áfram beri öðru fremur að fást við sameiginleg öryggismál aðildarríkjanna. Því til viðbótar og stuðnings er nauðsynlegt að bandalagið efli getu sína til þátttöku í friðargæslu og friðarframkvæmd og auki samráð og samvinnu við samstarfsríki enda er öryggishugtakið víðara nú en áður. Samhliða endurskoðun öryggismálastefnu bandalagsins munu íslensk stjórnvöld vinna að aðlögun stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum eftir því sem við á.

Sú umræða sem farið hefur fram á vinstri væng stjórnmálanna undanfarið um aðildina að NATO kemur á óvart. Álitið hafði verið að nú ríkti meiri friður en nokkru sinni fyrr um þátttöku okkar í bandalaginu, einkum í ljósi ótvíræðs mikilvægis þess í öryggismálum í álfunni og ekki síst vegna þess hve þátttaka okkar Íslendinga í bandalaginu hefur aukist og orðið sýnilegri í hinu nýja öryggisumhverfi.

Framtíð varnarsamstarfsins við Bandaríkin hefur komið til umræðu síðustu missirin. Öryggisumhverfi okkar heimshluta hefur tekið gífurlegum breytingum á undanförnum árum og hafa útgjöld til varnarmála lækkað í samræmi við það. Í Bandaríkjunum hafa útgjöld til varnarmála lækkað um 40% frá því um miðjan síðasta áratug og hefur varnarstöð Atlantshafsbandalagsins á Miðnesheiði ekki farið varhluta af þeim niðurskurði.

Vera varnarliðsins hér samrýmist varnarhagsmunum beggja ríkja og tryggir öryggi Íslands og jafnframt stöðugleika á Norður-Atlantshafi, mikilvægustu samgönguæð í heimi, hvort heldur á friðar- eða ófriðartímum. Varnarstöðin á Miðnesheiði er órjúfanlegur hluti þess kerfis. Samruni hinna pólitísku og hernaðarlegu þátta gera Atlantshafsbandalagið að akkeri stöðugleika í ólgusjó þeirra breytinga sem eiga sér stað í öryggismálum álfunnar. Í þessu samhengi verður að meta framtíð varnarsamstarfs Íslands og Bandaríkjanna.

Einn helsti styrkur varnarsamstarfs Íslands og Bandaríkjanna er sú gagnkvæmni og það gagnsæi sem er í samskiptum ríkjanna. Bandaríkin munu ekki án samþykkis íslenskra stjórnvalda breyta varnarviðbúnaðinum hér á landi. Að sama skapi þurfa íslensk stjórnvöld að laga sig að breyttu öryggisumhverfi og koma til móts við helsta bandamann sinn í varnarmálum, ekki síst á tímum niðurskurðar. Kostnaðarlækkun er lykilhugtak í því sambandi.

Mikið og gott starf hefur verið unnið í markaðs- og fjármálum Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar í kjölfar þeirra skipulagsbreytinga sem gerðar voru í fyrra. Skuldasöfnun hafði verið mikil fram að því. Tekjur flugstöðvarinnar hafa aukist verulega og er áætluð tekjuaukning í ár 245 millj. kr. sem 70% aukning milli ára. Verið er að hefjast handa við fyrsta áfanga stækkunar flugstöðvarinnar og hefur útboð vegna stækkunar flughlaða þegar verið auglýst. Á næsta ári verður hafist handa við suðurbyggingu stöðvarinnar og er ráðgert að ljúka verkinu í ársbyrjun 2001. Hér er um stórframkvæmd að ræða sem kostar um tvo milljarða króna. Með þessum áfanga fást sjö viðbótarstæði tengd landgöngubrúm auk þess sem byggð verður tæplega 4000 fm2 tengibygging. Verkefnið er brýnt því núverandi flugstöð er hönnuð fyrir um eina milljón farþega á ári. Flugtölur í september sýndu að þá höfðu tæplega milljón farþegar farið um flugstöðina þannig að hún annar ekki lengur því fólki sem þar fer í gegn.

Herra forseti. Ég vil að lokum þakka háttvirtum þingmönnum, reyndar landsmönnum öllum og atvinnulífinu, þann aukna skilning, sem ég tel að utanríkiþjónustan hafi fengið. Þessi stuðningur hefur eflt utanríkisþjónustuna og treyst hana í sessi. Stofnuð hefur verið fastanefnd í Strassborg, sendiráð í Helsinki var sett á laggirnar og í frumvarpi til fjárlaga næsta árs er gert ráð fyrir nýrri skrifstofu í Vínarborg, þ.e. við fastanefnd ÖSE. Enn fremur hafa innviðir aðalskrifstofu ráðuneytisins verið styrktir nokkuð. Enn kreppir þó skórinn að í vissum málaflokkum. Þannig verður að telja nauðsynlegt að efla starf að Evrópumálum og þátttöku annarra ráðuneyta í framkvæmd EES-samningsins. Ekki verður heldur hjá því komist að stuðla að því að ráðuneytið geti betur sinnt menningar- og upplýsingamálum gagnvart erlendum þjóðum.

Við verðum að horfa fram á veginn og opna ný sendiráð þar sem þörf er á, t.d. í Ottawa og Tókíó, eins og lagt var til í greinargerð nefndar um framtíð utanríkisþjónustunnar sem skilaði áliti í mars á þessu ári.

Herra forseti. Ég hef fjallað nokkuð um helstu þætti utanríkis- og öryggismála þó ég hafi á engan hátt getað gert þeim stóra málaflokki full skil. Stefna okkar Íslendinga í þeim mikilvægu málaflokkum hefur verið raunsæ og án skyndibreytinga allt lýðveldistímabilið. Hún hefur verið í anda friðar, vináttu og viðskipta við allar þjóðir og haft öryggi og velferð íslensku þjóðarinnar að leiðarljósi. Sú vegferð hefur verið farsæl og það er skylda okkar að halda henni áfram af fyrirhyggju og víðsýni.