Sturla Böðvarsson (andsvar):
Herra forseti. Það virðist allt benda til þess að hv. þm. hafi ekki lesið þessa tillögu nægjanlega vel vegna þess að það sem hann sagði er akkúrat það sem gert er ráð fyrir að gera á grundvelli þeirra tillagna sem hér er verið að ræða, þ.e. að leggja áherslu á að nýta orkulindir sem eru hagkvæmar og koma orkufyrirtækjum á fæturna þannig að þau verði sjálfbær, þau standi undir sínum rekstri án þess að fá nokkra styrki. Það er grundvöllurinn að þessari tillögugerð hvað varðar orkumálin.