Kristján Pálsson:
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigríði Jóhannesdóttur fyrir að hreyfa þessu máli hér. Það er rétt sem komið hefur fram að þarna er um að ræða land sem hefur lengi verið reynt að fá undir byggingarland af hálfu Njarðvíkurbæjar fyrst og síðan Reykjanesbæjar. Ég veit að það mál er á góðri hreyfingu þessa stundina og ég held að það megi þakka sérstökum aðgerðum hæstv. utanrrh. að málið er núna komið á það stig að við getum hugsanlega séð að rannsóknin á jarðveginum þarna liggi fyrir um áramótin og í framhaldi af því sjáist hve mikið af jarðvegi þarf að fjarlægja ef eitthvað þarf að fjarlægja á annað borð. Ég tek undir það með hv. fyrirspyrjanda að þetta er mál sem þarf að hreyfa og fylgja vel eftir því það er beðið eftir að þarna verði byggingarhæft landsvæði.