Magnús Stefánsson:
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að hreyfa þessu máli hér og hæstv. ráðherra fyrir svörin. Greinilegt er að mikið er um að vera í þessum málum hér á landi. Og það er ljóst að tilkoma fjarnáms og fjarkennslu og símenntunar og hvað þetta heitir allt saman opnar mörgum mikla möguleika á að auka við sitt nám.
Ég vek athygli á því að á morgun verður merkur viðburður á Samvinnuháskólanum á Bifröst þar sem skólinn mun opna kynningu á fjarnámi sem Samvinnuháskólinn mun bjóða upp á og hefst eftir áramót. Það mun opna mörgum möguleika til viðbótarnáms, sem hafa stundað nám við skólann bæði hér á landi og erlendis.
En ég vil, hæstv. forseti, þakka bæði hv. þm., Ísólfi Gylfa Pálmasyni, og hæstv. ráðherra. Ég tel að þetta sé mál sem við eigum að veita mikla athygli í framtíðinni og leggja okkur fram um að byggja sem best upp þannig að flestir geti notið.