Rannsókn kjörbréfs

Fimmtudaginn 19. nóvember 1998, kl. 13:34:17 (1345)

1998-11-19 13:34:17# 123. lþ. 28.1 fundur 109#B rannsókn kjörbréfs#, SP
[prenta uppsett í dálka] 28. fundur, 123. lþ.

[13:34]

Sólveig Pétursdóttir:

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf 2. varaþm. Alþfl. í Vestf., Kristínar Jóh. Björnsdóttur, sem landskjörstjórn gaf út í dag en 1. varaþm. flokksins í kjördæminu, Ægir E. Hafberg, getur ekki tekið sæti að þessu sinni á Alþingi. Nefndin hefur kynnt sér kjörbréfið, ekki fundið neitt athugavert og leggur til að það verði samþykkt.