Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir:
Hv. forseti. Þar sem ég hef starfað mjög mörg ár að lífeyrisjóðsmálum þá vil ég fagna þessu máli. Ég tel það alls ekki of flókið fyrir okkur til að framkvæma það enda er sá lífeyrissjóður sem hv. þm. Pétur Blöndal starfaði við búinn að stofna þessa séreignardeild. Hún er tilbúin. Þannig að ekkert er að vanbúnaði. Og aðrir lífeyrissjóðir eru að fara að gera þetta. Ég tel að aukinn sparnaður skipti verulega miklu máli og eigi eftir að skipta enn meira máli í framtíðinni þannig að þetta er hið þarfasta mál enda viðauki við þau lög sem fóru í gegnum Alþingi um lífeyrissparnað á síðasta þingi. Ég tek eindregið undir málið.