Fyrirspyrjandi (Ásta R. Jóhannesdóttir):
Herra forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. félmrh. um niðurstöðu nefndar um kynferðislegt ofbeldi gagnvart þroskaheftum. Þetta er í annað sinn sem ég ber fram þessa fyrirspurn. Hún var lögð fram á þinginu í vor en þá gafst ráðherra ekki tóm til að svara henni.
Í október 1996 skipaði hæstv. ráðherra þriggja manna nefnd til að taka saman upplýsingar um kynferðislegt ofbeldi gagnvart þroskaheftum. Nefndin var síðan endurskipuð í mars 1997. Sú nefnd skilaði skýrslu í október 1997, fyrir rúmu ári síðan, en ekkert hefur heyrst af því hvað fólst í skýrslunni né af tillögum nefndarinnar.
Eins og menn þekkja hafa þessi mál verið í verulegum ólestri. Tiltölulega nýlega hófst umræða um kynferðislegt ofbeldi gagnvart þessum hópi sem á reyndar undir högg að sækja í samfélaginu. Kynferðisleg misnotkun á þroskaheftum viðgengst því miður víða og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni einnig á ákveðnum stöðum, svo sem skemmtistöðum. Það er mjög mikilvægt að brugðist verði við og okkur ber að gera það. Brýnt er að heyra hverjar niðurstöður umræddrar nefndar voru. Rúmt ár er liðið síðan hún skilaði af sér án þess að nokkuð hafi heyrst af vinnu hennar. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra:
,,Hverjar voru helstu niðurstöður nefndar sem skipuð var í október 1996 og tók saman upplýsingar um kynferðislegt ofbeldi gagnvart þroskaheftum? Hyggst ráðherra gera niðurstöður hennar opinberar og ef svo er, hvenær? Kalla niðurstöður nefndarinnar á aðgerðir af hálfu yfirvalda?``
Þar sem nokkuð langt er síðan þessi fyrirspurn kom fram, þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra í viðbót: Hafa yfirvöld gripið til aðgerða nú þegar í kjölfar vinnu þessarar nefndar?