Tilkynningarskylda íslenskra skipa

Fimmtudaginn 03. desember 1998, kl. 10:48:16 (1537)

1998-12-03 10:48:16# 123. lþ. 32.1 fundur 260. mál: #A tilkynningarskylda íslenskra skipa# frv., samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur, 123. lþ.

[10:48]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Mér finnst næsta furðulegt að gefa í skyn að þær hvatir sem liggi á bak við það að koma upp sjálfvirkri tilkynningarskyldu sé að draga úr öryggi sjómanna. Það er þvert á móti með þessu verið að reyna að grípa til ráðstafana til þess að auka öryggi sjómanna, einkum þeirra sem eru á litlum bátum.