Leigubifreiðar

Fimmtudaginn 03. desember 1998, kl. 11:42:35 (1554)

1998-12-03 11:42:35# 123. lþ. 32.2 fundur 281. mál: #A leigubifreiðar# frv., samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur, 123. lþ.

[11:42]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Þetta hefur ekki áhrif á það. Á hinn bóginn getur maður á ný orðið fjár síns ráðandi þótt hann verði gjaldþrota með því að það verði upphafið annaðhvort með því að hann geti greitt skuldir sínar eða að lánardrottnar falli frá kröfu sinni ef nægilegur tími er liðinn. Ég man nú satt að segja ekki alveg hvernig sú málsmeðferð er, en ég hygg að þegar frá líður eigi að vera auðvelt fyrir mann sem orðið hefur gjaldþrota að vera á ný sjálfs sín ráðandi.