Skipulag á fólksflutningum með hópferðabifreiðum

Fimmtudaginn 03. desember 1998, kl. 12:33:22 (1565)

1998-12-03 12:33:22# 123. lþ. 32.3 fundur 282. mál: #A skipulag á fólksflutningum með hópferðabifreiðum# frv., samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur, 123. lþ.

[12:33]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek af allan vafa um að ég er fullkomlega sammála hv. þm. um að við verðum að hafa allan varann á í þessum efnum. Kjarni málsins er ekki sá hvernig við skiljum nákvæmlega orðalagið sem hér er heldur hvort sú reglugerð sem um ræðir hafi verið sett samkvæmt íslenskum réttarreglum. Það er auðvitað kjarni málsins en ekki hitt hvort ógætilega sé komist að orði í þessari greinargerð. Af þeim sökum mun ég láta kynna reglugerðina fyrir samgn.