Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til að auka hlutafé Íslands í Norræna fjárfestingarbankanum og hækka útlánaramma vegna norrænna fjárfestingarlána til verkefna utan Norðurlanda. Frv. þetta er á þskj. 333 sem er 285. mál þingsins.
Ráðherranefnd Norðurlanda, efnahags- og fjármálaráðherrarnir sem fara með málefni Norræna fjárfestingarbankans á norrænum vettvangi, samþykkti á fundi sínum 24. júní sl. tillögu bankastjórnar Norræna fjárfestingarbankans um að hækka hlutaféð úr tæplega 2.809 milljónum ECU í 4.000 milljónir ECU. Jafnframt var samþykkt að heimila bankanum að hækka útlánaramma vegna norrænna fjárfestingarlána til verkefna utan Norðurlandanna úr 2.000 milljónum ECU í 3.300 milljónir ECU. Að undanförnu hefur eftirspurn eftir lánum frá bankanum aukist verulega, ekki síst til verkefna í Austur- og Mið-Evrópu, en einnig innan Norðurlandanna. Til þess að geta mætt þessari auknu eftirspurn er nauðsynlegt að treysta eiginfjárstöðu bankans. Jafnframt er talið nauðsynlegt að hækka útlánaramma vegna svonefndra PIL-lána, þ.e. lána til fjárfestingarverkefna utan Norðurlandanna. Hins vegar er ekki talið nauðsynlegt að auka ábyrgðir einstakra Norðurlanda vegna þessarar hækkunar þar eð bankinn mun sjálfur auka framlag sitt til afskriftasjóðs vegna þessara lána. Enda þótt þessi lán hafi farið til norrænna verkefna í ríkjum þar sem lánsáhætta er meiri en gengur og gerist hafa til þessa engin afföll orðið, þótt dregist hafi að inna greiðslur af hendi tímanlega í fáeinum tilvikum.
Herra forseti. Með frv. þessu er verið að leita eftir heimild fyrir ríkisstjórnina til að auka hlutafé Íslands í Norræna fjárfestingarbankanum og vitna ég þá til greinargerðar eða umsagnar fjárlagaskrifstofu fjmrn. þar sem fram kemur að á næstu þremur árum þurfi um 8,8 millj. ísl. kr. til að standa undir þessari hlutafjáraukningu, og gert er ráð fyrir því í fjárlagafrv. ársins 1999 að þessar fjárveitingar séu þar til staðar og á næstu þremur árum þar á eftir.
Að lokinni þessari umræðu, herra forseti, legg ég til að málinu verði vísað til hv. efh.- og viðskn. þingsins.