Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Mánudaginn 07. desember 1998, kl. 15:06:14 (1711)

1998-12-07 15:06:14# 123. lþ. 34.7 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 34. fundur, 123. lþ.

[15:06]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég skildi umræðuna í nefndinni þannig að ekki væri verið að skerða réttindi eða ráðstöfunarrétt sjúklings með þessu frv. Ég tel því afar mikilvægt að það komi mjög skýrt fram hjá hv. þm. í þessari umræðu að einkaleyfi rekstrarleyfishafans skerði á engan hátt réttindi sjúklingsins, þ.e. ráðstöfunarrétt sjúklingsins yfir heilsufarsupplýsingum sínum, og það að gerðir séu sérsamningar við rekstrarleyfishafa um aðgang að heilsufarsupplýsingum skerði alls ekki réttindi sjúklingsins. Það verður að koma algerlega skýrt fram í þessari umræðu.