Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Þriðjudaginn 08. desember 1998, kl. 17:04:08 (1791)

1998-12-08 17:04:08# 123. lþ. 35.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 35. fundur, 123. lþ.

[17:04]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að gera alvarlegar athugasemdir við ræðu hv. þm. Guðmundar Árna Stefánssonar. Hann er hér með aðdróttanir í garð starfsmanna Íslenskrar erfðagreiningar og sérstaklega er hann með aðdróttanir í garð fyrrverandi skrifstofustjóra heilbrrn. Og mér finnst nú varla svaravert það sem hv. þm. leggur hér fram fyrr hann biður afsökunar á þeim ummælum sem hann hafði um Kristján Erlendsson, fyrrv. skrifstofustjóra í heilbrrn.