Forseti (Guðni Ágústsson):
Sjálfsagt eru mörg mál sem þarf að taka upp og hægt er að ná samkomulagi um en í fyrsta lagi þarf vilja til þess. Það stendur þannig að á haustin er kjörið í nefndir þingsins og nefndirnar velja sér síðan forustumenn og í huga forseta er það auðvitað fyrst og fremst nefndarinnar að gera út um það.