Forseti (Guðni Ágústsson):
Séu það óskir stjórnarandstöðunnar að þessi mál séu skoðuð hlýtur það að vera fyrsti vettvangurinn að taka málið upp í hópi þingflokksformanna og leita eftir því. Það hlýtur að vera leiðin í þessu máli fremur en að þrátta um það í þingsal.