Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 12:40:45 (1928)

1998-12-10 12:40:45# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[12:40]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti hefur ekkert um þetta að segja annað en það að ætlunin er að ljúka umræðunni í dag klukkan tvö. Og hvort einhverjar af brtt. sem þegar hafa verið lagðar fram og ræddar við þessa umræðu verða kallaðar aftur til 3. umr. getur forseti ekki svarað heldur verður það að koma í ljós við atkvæðagreiðsluna.

Aðrar tillögur sem hafa verið boðaðar og forseti þekkir ekki verða þá væntanlega ræddar í nefndinni á milli umræðna.