Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 13:02:57 (1938)

1998-12-10 13:02:57# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[13:02]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það versta sem ég hef heyrt í morgun var þetta síðasta, að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon komi aldrei í Framsfl. Ég tel að hann eigi þar heima og hvergi annars staðar. En það er bara mitt mat.

Það að bera saman Hvalfjarðargöng og gagnagrunn gerði ég það einungis varðandi fjármögnunina. Til að flýta framkvæmdum á mikilvægum málum þá kann stundum að vera nauðsynlegt að fjármagna þau öðruvísi en beint úr ríkiskassanum.