Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 13:09:41 (1946)

1998-12-10 13:09:41# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[13:09]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tel að málið sé mjög vel unnið. Að þessu máli hafa komið mjög margir sérfræðingar. Ég sagði áðan að hv. heilbr.- og trn. hafi af samviskusemi farið vel yfir málið og ýmsar brtt. frá hv. nefnd eru til bóta við málið. Ágætt mál er því orðið miklu betra og ég tel að þetta mál sé að verða fullþroskað. Við höfum rætt þetta í marga mánuði og mjög margir komið að því.