Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 13:10:27 (1947)

1998-12-10 13:10:27# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[13:10]

Svavar Gestsson (andsvar):

Herra forseti. Ég tek eftir því í gögnum þessa máls að fjárlagaskrifstofa fjmrn. hefur metið hugsanlegan kostnað af framkvæmd frv. fyrir ríkissjóð. Ég tek líka eftir því að í grg. frv. er dálítil úttekt á stofnkostnaðarmati. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hefði ekki talið eðlilegt að Ríkisendurskoðun fengi að fara sérstaklega yfir málið með hliðsjón af hinum nýju lögum um fjárreiður ríkisins sem voru samþykkt í fyrra eða hittiðfyrra vegna þess að nokkrir rekstrarkostnaðarliðir í frv. munu koma inn í fjárlög komandi ára ef frv. verður að lögum.