Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 14:03:44 (1955)

1998-12-10 14:03:44# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[14:03]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Lögfræðingar ráðuneytisins fóru til Brussel fyrir þremur mánuðum og kynntu ráðamönnum og embættismönnum þar frv. Farið var yfir það lið fyrir lið og ekkert bendir til þess að það brjóti neitt í bága við alþjóðasamþykktir.