Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 14:04:51 (1957)

1998-12-10 14:04:51# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[14:04]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eftir því sem ég best veit kynntu lögfræðingar ráðuneytisins fulltrúum heilbrn. þessa fundi sem þeir áttu í Brussel. Eins og hv. þm. veit erum við í fararbroddi hvað þetta mál varðar. Þetta er eitt einstakt mál þannig að aðrir hafa ekki farið þessa leið áður. En eins og ég segi þá er búið að kynna þetta á alþjóðavettvangi og þetta virðist ekki brjóta í bága við alþjóðasamþykktir. Það hefur verið kynnt í heilbr.- og trn.