Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 17:45:37 (2017)

1998-12-10 17:45:37# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, GÁS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[17:45]

Guðmundur Árni Stefánsson:

Virðulegi forseti. Eðlilegast væri að samþykkja þessa tillögu og senda þetta frv. eins vanbúið og það er heim til föðurhúsanna. En í ljósi þess að hér á eftir er að finna 12 markvissar og greinargóðar brtt. við þetta frv., brtt. sem í raun fela í sér nýtt frv. sem ég og fleiri þingmenn jafnaðarmanna hafa hér flutt, þá vil ég láta á það reyna. Ég hef fulla trú á því að skynsemi ráði í þetta sinn. Því greiði ég ekki atkvæði.