Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 17:58:31 (2024)

1998-12-10 17:58:31# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, BH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[17:58]

Bryndís Hlöðversdóttir:

Herra forseti. Hér kemur fram mjög athyglisverð hugmynd sem lögð hefur verið fram í brtt. af hálfu hv. þm. Guðmundar Árna Stefánssonar o.fl. Það hefur verið gagnrýnt af mörgum hér, og ég hef tekið undir þá gagnrýni, að þetta mál hefur hvorki fengið umfjöllun í heilbr.- og trn. né heldur í þinginu að öðru leyti. Þess vegna tek ég þá afstöðu að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um þessa grein.