Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Miðlægur gagnagrunnar á heilbrigðissviði eins og hér er gerð tillaga um er óþekkt fyrirbæri í veröldinni. Erlendis frá hafa komið sjónarmið fjölmargra, vísindamanna og stofnana, sem vara eindregið við því skrefi sem hér er verið að stíga. Innan lands er mikil andstaða við þetta frv. eins og menn þekkja, ekki síst í íslenska vísindasamfélaginu.
Í umsögnum sem heilbr.- og trn. Alþingis hafa borist er yfirgnæfandi neitun við þessu frv. sem hefur verið kortlögð eins og hér má sjá. Menn eru því hér sannarlega á rauðu ljósi.