Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Í 1. mgr. þessarar greinar er gert ráð fyrir því að einungis einn geti fengið starfsleyfi. Það liggur fyrir í umsögn Lagastofnunar Háskóla Íslands að stofnunin treystir sér ekki til að fullyrða að þetta ákvæði standist EES-réttinn. Það er jafnframt tekið fram af hálfu stofnunarinnar að með þessu sé tekin nokkur áhætta. Samkeppnisstofnun finnur þessari grein allt til foráttu og bendir á að þetta einkaréttarákvæði getur í mörgum greinum brotið reglur EES-réttarins og þess vegna greiði ég atkvæði gegn þessari grein.