Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 18:27:17 (2048)

1998-12-10 18:27:17# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, BH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[18:27]

Bryndís Hlöðversdóttir:

Herra forseti. Hér kemur til atkvæða eitt vandræðalegasta og um leið umdeildasta ákvæði frv., ákvæðið um aðgangsnefndina svokölluðu. Hún brýtur í bága við samkeppnisreglur EES-samningsins, hún ógnar vísindafrelsinu af ástæðum sem farið hefur verið ítarlega yfir í umræðunni. Meiri hlutinn hefur ekki enn fundið lausn á því vandamáli sem birtist í þessari grein. Ég greiði því atkvæði gegn greininni.