Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Ég tel að það sé í sjálfu sér mjög æskilegt, alveg eins og í frv. um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda og Lífeyrissjóð bænda, að ljúka umfjöllun í þinginu þannig að þessi mál geti tekið gildi um áramót. Hins vegar er greint frá því í skýringum við gildistökuákvæði frv. að þær skerðingar sem frv. gerir ráð fyrir komi ekki til framkvæmda fyrr en 1. júlí nk. Segja má að þar sé visst ráðrúm gefið og fram að þeim tíma gildi ákvæði núgildandi reglugerðar sjóðsins að því er varðar öll lífeyrisréttindi.
Gert er ráð fyrir því að hin nýja stjórn sem hv. þm. vék að taki við að loknum fyrsta ársfundi sjóðsins sem ber að halda fyrir lok júní nk. Auðvitað er um margt mjög æskilegt að reyna að ljúka þessu fyrir áramótin. En ég legg það í mat hv. þingnefndar hvort hún treystir sér til þess að ljúka þessu verki fyrir þann tíma og bið hana að kanna hvaða afleiðingar það muni hafa fyrir sjóðinn ef ekki tekst að gera það. En sem sagt, það skiptir ekki máli gagnvart réttindaskerðingunni vegna þess að hún er ekki ráðgerð fyrr en um mitt næsta ár.