Afgreiðsla heilbr.- og trn. á frumvarpi um gagnagrunn

Föstudaginn 11. desember 1998, kl. 14:05:16 (2115)

1998-12-11 14:05:16# 123. lþ. 38.94 fundur 159#B afgreiðsla heilbr.- og trn. á frumvarpi um gagnagrunn# (um fundarstjórn), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur, 123. lþ.

[14:05]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti getur ekki svarað fyrir gerðir heilbr.- og trn. og forseti getur heldur ekki tekið undir gagnrýni hv. þm. á að fundur skuli hefjast þótt nefndarmenn í tiltekinni nefnd séu ekki mættir til fundar. Það er hins vegar gagnrýnivert að fundur skuli standa í þingnefnd eftir að fundur hefst í þinginu. Það er gagnrýnivert.

Fjárlög eru hér á dagskrá og umræðum um fjárlög verður haldið áfram.