Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessi svör og það er mér mikið ánægjuefni að hæstv. heilbrrh. hefur skilning á því að heilsugæslustarfsemi eigi að reka í sérsmíðuðu húsnæði fyrir heilsugæslu eins og er á Sólvangi í Hafnarfirði. Þannig að vangaveltur sem eru uppi í meiri hluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar eru ekkert uppi á borðum í heilbrrn. og eru því hugarfóstur heimamanna, þ.e. meiri hluta bæjarstjórnarinnar, og hæstv. heilbrrh. ætlar ekki að taka þátt í því.
Það er alveg rétt sem hæstv. ráðherra sagði áðan, þó ég hafi svo sem ekki gert það sérstaklega að umtalsefni, að ágætisuppbygging hefur orðið í heilsugæslumálum í mínu kjördæmi. Þau mál voru komin á góðan skrið og búið að setja þau í fínan og traustan farveg þegar hæstv. ráðherra kom að verki fyrir fjórum árum. Kópavogsmál voru þá frágengin til að mynda og ýmis önnur þannig að hún hefur náð að fylgja þeirri stefnumörkun ágætlega eftir og ég þakka henni fyrir það.