Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Eitt stærsta mál sem komið hefur til kasta Alþingis Íslendinga frá upphafi vega er nú að koma til 3. umr. eftir málamyndaumfjöllun í heilbr.- og trn. þingsins þar sem meiri hluti nefndarinnar lokaði á alla möguleika til að skoða brtt. meiri hlutans og fá á þeim álit. Breytingar á frv. hafa leitt til þess að samtök á borð við Rannsóknarráð Íslands hafa nú lýst andstöðu við frv. og í þjóðfélaginu heyrast nú mjög þung orð um þessi vinnubrögð af hálfu ríkisstjórnarinnar og meiri hluta hennar á Alþingi.
Hæstv. forseti. Ég fer fram á að þessari umræðu verði frestað og tryggt að vandaðri og lýðræðislegri vinnubrögð verði viðhöfð við afgreiðslu þessa máls.