Beiðni um fundarhlé

Þriðjudaginn 15. desember 1998, kl. 14:09:15 (2294)

1998-12-15 14:09:15# 123. lþ. 41.93 fundur 172#B beiðni um fundarhlé# (um fundarstjórn), Forseti RA
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 123. lþ.

[14:09]

Forseti (Ragnar Arnalds):

Áður en lengra er haldið vill forseti upplýsa að eftir svo ítrekaðar og ákafar óskir um hlé til þess að ræða stöðu málsins og eftir að forseti hefur ráðfært sig við talsmenn stjórnarmeirihlutans hér, þá hefur hann ákveðið að gera 15 mínútna hlé. Forseti spyr hvort þeir sem kvöddu sér hljóðs um fundarstjórn forseta geti fallist á að falla frá orðinu áður en hlé er gert.