Framhald þingstarfa

Þriðjudaginn 15. desember 1998, kl. 14:48:14 (2301)

1998-12-15 14:48:14# 123. lþ. 41.94 fundur 173#B framhald þingstarfa# (um fundarstjórn), KH
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 123. lþ.

[14:48]

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Það er ákaflega erfitt að sætta sig við þau vinnubrögð sem hér eru látin yfir okkur ganga og sem ég tel öldungis fáheyrð, og að virðingu Alþingis sé misboðið með þeim vinnubrögðum sem viðhöfð eru af hálfu meiri hlutans á Alþingi. Og nú, eftir þetta hlé sem gert var, þá liggur fyrir að ekkert liggur fyrir um vinnulag og þinghald það sem eftir lifir þessarar viku, annað en að það er meiri hlutinn sem öllu ræður. Það er ekkert samkomulag um þinghaldið næstu daga og á því ber meiri hlutinn alla ábyrgð.