Framhald þingstarfa

Þriðjudaginn 15. desember 1998, kl. 14:51:01 (2303)

1998-12-15 14:51:01# 123. lþ. 41.94 fundur 173#B framhald þingstarfa# (um fundarstjórn), SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 123. lþ.

[14:51]

Sigríður A. Þórðardóttir:

Herra forseti. Nú er liðið á aðra klukkustund síðan umræðan um það eina mál sem hér er á dagskrá átti að hefjast, og ég held að það sé mál til komið að við hefjum umræðuna. Því hefur aldrei verið hafnað af hálfu stjórnarmeirihlutans að ræða þingstörfin en það þarf hins vegar ekki að gera hlé á þingfundi til þess, það er alveg ljóst. Í mínum huga er það því skýrt að stjórnarandstaðan er einfaldlega að reyna að koma í veg fyrir að mál sem hér er á dagskrá sé tekið til umræðu.