Ágúst Einarsson (andsvar):
Herra forseti. Vont var málið en er orðið enn verra vegna þess að sá eini aðili sem hingað til hefur stutt málið í vísindaumhverfinu, Rannsóknarráð Íslands, hefur gefið út tilkynningu um þetta efni og ég vil, með leyfi forseta, vitna í það bréf en þar segir svo:
,,Meiri hluti heilbrigðisnefndar Alþingis brást við þessum athugasemdum`` --- þ.e. í sambandi við aðgengið --- ,,með því að takmarka enn frekar aðgengi vísindamanna að grunninum. Með þessu telur ráðið að forsendur álits Rannsóknarráðs séu breyttar.``
Síðar í bréfinu segir: ,,Ef ekki reynist unnt að tryggja íslenskum vísindamönnum og stofnunum öruggan aðgang að hinum miðlæga gagnagrunni ...`` --- og þá halda þeir áfram og segja svo, með leyfi forseta: ,,Ráðið mælir gegn samþykkt frumvarpsins og veitingu fyrirhugaðs sérleyfis.``
Hæstv. meiri hluti heilbr.- og trn. tekur núna fyrri ákvæði í 9. gr. og fellir inn í 6. gr. um að nefndin sem þar er sem á að hafa umsjón með samningum skuli m.a. fjalla um þennan þátt málsins. Rannsóknarráð telur að verið sé að þrengja enn frekar aðkomu vísindamanna að grunninum. Ég er sammála því og það er fyrir neðan allar hellur að gera aðkomu vísindamanna verri en hún var fyrir og við eigum að taka mark á Rannsóknarráði.