Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Siv Friðleifsdóttir) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég skildi hv. þm. þannig að hægt væri að fá upplýsingar í gegnum samkeyrslu sem lyti að einhverju öðru en persónuvernd og það væri þá hugsanlega einhvers konar vísindasiðalegt mat sem þyrfti. Ég vil einmitt benda sérstaklega á í þessum umræðum að það er ein af þeim meginbreytingum sem við gerðum á frv. milli 1. og 2. umr. Það voru tvær meginbreytingar. Í fyrsta lagi tókum við inn að heimilt væri fyrir ráðherra að semja um frekara gjald af hendi rekstrarleyfishafa til heilbrigðisþjónustunnar og svo í öðru lagi að inn væri tekin vísindasiðanefnd. Að allar rannsóknir, allar fyrirspurnir bæði frá væntanlegum starfsleyfishafa og frá þeim vísindamönnum sem eru utanaðkomandi fari í gegnum vísindasiðalegt mat áður en fyrirspurn er leyfð þannig að það er búið að tryggja það með breytingum á frv.