Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Siv Friðleifsdóttir) (andsvar):
Virðulegur forseti. Það er alveg ljóst að meiri hlutinn ræður hvernig hann hagar framkomu sinni í umræðum á Alþingi varðandi málið. Það var ágætt að heyra að hv. þm. teldi núna EES vera til bóta almennt enda komin í raðir jafnaðarmanna sem stóðu fyrir þeim samningi á sínum tíma. Kannski er von í því að hv. þm. telji að miðlægur gagnagrunnur sé til mikilla bóta síðar þegar hv. þm. hefur kannski séð hvað margt gott felst í honum.
Það kom líka fram í ræðu hv. þm. að það hefði ekki verið leitað til ákveðinna aðila varðandi aðgengisnefndina. Ég vil mótmæla því. Leitað var til Davíðs Þórs Björgvinssonar frá Lagastofnun Háskóla Íslands um málið og var sérstaklega bent á að þetta gæti brotið EES-samninginn.
Ég ítreka það, með leyfi forseta, að í áliti 1. minni hluta, sem hv. þm. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir skrifar upp á, segir að 1. minni hluti telur báðar leiðirnar, þ.e. þær leiðir sem að framan greinir varðandi útfellingu á aðgengisnefndinni, telur báðar leiðirnar koma til greina. Síðar segir svo: ,,og hefur því afráðið að fresta um sinn að leggja fram formlega brtt. um aðra hvora leiðina.``
En hér er komin önnur leiðin sem hv. þm. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir var að tala um. Hér er meiri hlutinn búinn að fallast á aðra þessa leið. En núna á að hlaupa eins hratt og fætur toga frá málinu í heild. Þetta sýnir að menn treysta sér ekki til að samþykkja svona framfaramál vegna þess að í stjórnarandstöðunni er hver höndin upp á móti annarri í málinu.
Ég skil núna að öll stjórnarandstaðan þjappar sér bara saman og hleypur frá öllu saman.